stelpukvold

Wednesday, October 04, 2006

Berglind Osk said

Ákvað að setja síðasta kommentið með planinu sem blogg þar sem Begga gat það ekki en svona hljómar það:


Berglind Ósk said...
JÆJA, svo þetta verði nú ekkert flóknara og meira vesen þá er ég og Lilja Ýr eiginlega bara búnar að ákveða að breyta aðeins planinu fyrir laugardaginn. Þetta er lokaákvörðun. Lilja var búin að plana magadans en þar sem fatlafól er á meðal okkar þá er það ekki hægt:( Því miður því það þurfti að vera fimm til að það borgi sig. Planið verður því eftirfarandi.. Við hittumst um 13:30 heima hjá Lilju Ýr og förum í ísbíltúr og svo annaðhvort horfum við á fimleikasýningu eða bara einhverja stelpumynd og svo förum við í sund. Þaðan förum við svo aftur heim til Lilju og græjum okkur og svo út að borða og þaðan heim til einhverrar og höfum gaman af...:D Þurfum að fá svar sem allra allra fyrst. Knús knús Berglind og Lilja Ýr

P.S. Ég er til að koma að sprella með um þrjú!!

við helga

Hæ við Helga ætlum hér með að láta heyra í okkur (sumum finnst væntanlega tími til kominn en það er nú önnur saga... það er að segja ekki saga jóns... ) Helga kemst í allt fyrir kl 15 þar sem hún er að fara í klippingu kl. 15 en ég kemst í allt eftir kl 15 þar sem ég verð stödd í Fimleikafélaginu Björk til ca 15. (aldrei þessu vant). Þannig að mér líst voða vel á hugmynd nr. 2 (Helga kæmist í magadansinn kl 12). Við ætlum svo að verða fullar og vitlausar um kvöldið og vonum að allar sem eru ekki óléttar taki þátt í þeim óleik okkar.

Over and out...

Friday, September 29, 2006

Saga að standa sig!!

Það er alveg ljóst að Saga á heiðurinn að því að ég er loksins búin að koma þessu í gang... ég ætla að fara að reyna að "adda" ykkur inn á bloggið svo þið getið "creatað post" en þar til verðum við að notast við commenta kerfið!!
Sendi ykkur svo töluvpóst með upplýsingum um notendanafn og lykilorð... eða hvað þið eigið að gera! Veit ekki alveg hvernig þetta vikar... þarf að skoða það aðeins betur!